Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Merkilegast

sjöundidesembertvöţúsundogátta

07. desember 2008 klukkan 18:39
Er kominn tími á upplýsingar...?
Edinborgararnir
Engin athugasemd

Sól og myndir

23. ágúst 2007 klukkan 18:39
Það gefur mér mikla gleði að tilkynna að myndirnar eru komnar inn! Úje...

Það lítur út fyrir að sumarið sé opinberlega komið hingað til okkar í Skotlandi, hitinn búinn að vera yfir 20 gráðunum og sólin hátt á lofti síðustu dagana og spáin er eins næstu daga.

Festivalið klárast að mestu leiti núna um helgina, ekki komumst við á neitt þetta árið en þetta er örugglega ekki seinasta árið sem þetta festival er.

Við munum fara á Frónna þann 2.sept. Það er s.s. ákveðið - en ekki ákveðið hvað við verðum lengi.
Meira um það seinna.
Edinborgararnir
17 athugasemdir

Bla, Fisher Price og afmćli

22. ágúst 2007 klukkan 22:01

Ég sé mig knúna til að benda á bloggið hennar Evu; ég hef ekki náð andanum í hálftíma -get svo svarið það!

Biggi að skila ritgerðinni á föstudaginn, þá verður sko kampavín og læti!

Annars á kallinn afmæli í dag ;-)

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ BIGGI!!!

(er á leiðinni í hina tölvuna asap að setja inn myndir ;-))

Edinborgararnir
Engin athugasemd

Beetroot Chocolate Fudge Cake, Festival og rigning

18. ágúst 2007 klukkan 23:41
Tók mig til í dag og bakaði þessa líka snilld - að sjálfsögðu sykur- og hveitilaus... Næstum því en ég breytti henni aðeins; notaði spelt í staðinn fyrir hveiti og agave-sætu í staðinn fyrir sykur og ég held að það breyti bragðinu ekki neitt.
Heitið á henni hljómar mjög einkennilega ég veit, en hún er rosalega góð. Það tekur smá tíma að gera hana en hey! ég hef nóg af honum þessa dagana.
Sko, í staðinn fyrir að pakka búslóðinni okkar niður í kassa og allt það þá er ég bara að dóla mér. Okkur var farið að kvíða svo rosalega fyrir því að fara héðan að við ákváðum að fara barasta ekkert!
Reyndar ætlum við að sækja Ísland heim í nokkra daga í sept. en svo komum við bara aftur hingað og höfum ekki hugmynd um hvað við erum að fara gera. Það kemur bara í ljós. Við erum allavega búin að redda húsnæðismálum bæði hérna úti og líka heima í Eskihlíðinni. Það eru s.s. einhverjir Pólverjar búnir að vera í íbúðinni okkar undafarna mánuði, mind you ekki sama fólkið og leigði hana upphaflega...
Við höfum ekki hugmynd um hver er þarna núna en leigan er alltaf greidd og í gegn um krókaleiðir gat ég komist í samband við fyrrverandi vinnuveitanda vinar sons hjóna sem búa (kannski) þarna núna. Eða allavega eru þessi hjón partur af íbúunum, það eru víst einhverjir fleiri þarna. En þessi vinur sonar(...) er búinn að segja okkur að það sé ekki heill hópur af fólki þarna og hefur aldrei verið. Nágranninn okkar segir að það heyrist aldrei neitt frá íbúðinni þannig við erum bara sátt. Á meðan þau borga og eru ekki að valda nágrönnum okkar ónæði þá er okkur sama.
Allir sáttir.
Við verðum allavega eitthvað áfram hérna, engan veginn tilbúin að fara aftur til Íslands til að búa þar strax. Okkur langar bara til að vera lengur og gerum það þá bara. Hey! Hvað er það versta sem getur gerst? Getum haft þessa íbúð lengur og svo gætum leigt aðra íbúð líka ef við lendum í húsnæðisveseni. Þá er bara að finna leið til að afla peninga. Kwa! Ætti ekki að vera vandamál.

Annars er bara allt rosa gott að frétta.
Biggi er á lokasprettinum með lokaritgerðina, á að skila 24.ágúst. Við getum ekki beðið. Samskipti okkar hjónaleysana á sér stað símleiðis þessa dagana. Hann er bókstaflega fram á nætur upp í skóla að skrifa (eða svo segir hann allavega ;-))
Festivalið er á fullu hér í borg núna. Ég hef ekki farið á neitt sem er í boði en það er alveg fullt sem mig langar á. Við ætlum að reyna kíkja á eitthvað þegar Biggi er búinn en það er auðvitað ekki margt sem maður getur farið á með eins og hálfs árs barn. Það er ekki hægt að bjóða henni upp á hvað sem er sko. Hún hefur mjög sterkar skoðanir á því hvað hlutirnir megi taka langan tíma og það tekur víst allt of langan tíma sem er í boði á festivalinu. En bara það að fara niðrí bæ þessa dagana er alveg nóg skemmtun í sjálfu sér. Þvílík mannmergð og fjör! Hugsið ykkur menningarnótt og margfaldið með tíu, og svoleiðis er þetta hvern einasta dag! Að labba niður Royal Mile er upplifun í sjálfu sér. Endalaust af fólki, endalaust. Að bjóða upp á atriði, að sýna brot úr atriðum til að auglýsa sýningar og svo er fólk að dreifa auglýsingamiðum á hverju skrefi sem maður tekur. Það er hægt að labba 5 metra og fá upp í hendurnar 20 auglýsingamiða. Bjarnheiður kæmist ekki fyrir í vagninum ef ég tæki við öllum miðunum sem okkur væri boðið og ég myndi setja þá í vagninn hennar. Það er ekki skrítið að regnskógarnir séu að hverfa...

Talandi um regn...
Veðurmælingar hófust í Bretlandi kringum 1750.
Árið 1786 var metár í regni. Þá rigndi meira en elstu menn mundu og síðan mælingar hófust.
Núna í sumar ha, árið 2007 ha, 321 ári eftir að metárið í regni kom og 357 árum eftir að mæilngar hófust ha, var þetta met slegið HA!!! Hverjar eru líkurnar? Akkúrat þegar við Íslendingarnir ætluðum svo aldeilis að njóta þess að fá gott, heilt rigningarlaust SUMAR, þá er þetta blessaða met slegið!
Get svo svarið það. Og á móti hefur þá veðrið upp á Frónni verið svo gott að elstu menn muna ekki annað eins.
 
Eða, eins og pabbi sagði; næst-elstu menn, þeir elstu eru farnir að kalka svo mikið að þeir muna ekki lengur hvað mömmur þeirra hétu, hvað þá hvernig veðrið var í gamla daga ;-)

(þetta með myndirnar, þær koma bráðum...)
Edinborgararnir
1 athugasemd

Skildunni sinnt

13. ágúst 2007 klukkan 10:25
Þá er maður búin að hlaða nokkrum myndum á síðuna.
Ég á enn eftir að setja inn þónokkrar og aldrei að vita nema ég komi nokkrum orðum af viti á þessa síðu í kvöld þegar ég klára myndadæmið...
Edinborgararnir
2 athugasemdir

Sund og gjafir

07. júní 2007 klukkan 10:15
Um daginn var ég eitthvað að bardúsa inn í eldhúsi og heyri í Bigga segja við Bjarnheiði:
"Farðu með þetta til mömmu, gefðu mömmu". Svo kom litla daman með pakka og rétti mér, voða stolt.
Í pakkanum var hálsmen; semelíusteinar og svartar perlur og nistið er eins og andafæla með rós í miðjunni. Ekkert smá flott!
Svo kom Biggi með ANNAN pakka! Það var sko gull-hálsmen með perlu, alveg rosalega fallegt og það hefur ekki farið af mér síðan. Feðginin voru að gefa mér síðbúnar afmælisgjafir, naaaaww!

Í fyrramorgun var ég að fara hella upp á kaffi og tek eftir því að kaffið var næstum búið. Segi við Bjarnheiði;
"Við verðum að muna eftir að kaupa kaffi í dag".
Svo ca. tveimur tímum síðar hringir dyrabjallan og hvað haldiði? Það var kaffi-farandsölumaður!!!
Þetta er eins og upp úr skáldsögu... Að sjálfsögðu keypti ég kaffi af manninum, annað hefði nú bara verið að storka kosmósinu.
Maður á að taka við gjöfunum sem að manni er rétt, ekki satt?

Við fórum í sund hérna og það er nú soldið öðruvísi en heima... Það er farið í sturtu í sundfötunum og það er virkilega skilti í sturtuklefunum sem segir: "Nudity forbidden in the showers".
Manni fannst hálfskrítið að fara svo í laugina vitandi að allir í henni hefðu bara rétt bleytt á sér hnakkann áður en þeir komu ofan í. En það vantaði ekki klórinn og við lifðum þetta af þannig kannski er þetta í lagi.
Bjarnheiður var ekki að fíla þetta nógu vel, soldið langt síðan hún fór í sund, en við ætlum að fara aftur sem fyrst; það er ekki hægt að vera Íslendingur og ekki finnast gaman í sundi!

Held að sumarið sé loksins komið, hitinn er fínn en það er soldið oft skýjað -sem mér reyndar finnst fínt, þoli ekki of mikinn hita-  og svo rignir aðeins of oft.
Það komu svaka þrumur og eldingar hérna um daginn. Við mæðgur vorum áleiðinni heim úr búðinni og áttum u.þ.b. hálfan kílómetra eftir þegar heyrðist í fyrstu þrumunum. Ég kann nottla ekkert á svona læti og vissi ekki hvenær mætti búast við að demban kæmi, þannig ég skellti töskunni minni í fangið á Bjarnheiði (sem var í vagninum sínum) og rauk af stað. Hljóp alla leiðina heim. Það voru nokkrir dropar byrjaðir að koma þegar við komum að Polwarth-kastala og það byrjaði ekki að rigna fyrir alvöru fyrr en 10 mín. eftir að við vorum komnar inn. Hefði ekki þurft að hlaupa svona rosalega en ég fékk þó workout.

Annars er nú ekki mikið að frétta, Biggi er bara byrjaður á fullu í lokaverefninu og við mæðgur erum að njóta lífsins í -hinni æðislegu- Edinborg.
Og loksins er fólk á leiðinni til okkar; Heiða og Toggi ætla koma í lok mánaðarins og svo eru Maggarnir á leiðinni í júlí.
Hver er næstur? Það er frí gisting sko!
Edinborgararnir
9 athugasemdir

Kantar og skrímsli

30. maí 2007 klukkan 10:37
Smá update:

Erum búin að fara í tvær stuttar ferðir; til North Berwick og til höfuðstaðs hálandanna - Inverness.
Algjört æði að komast aðeins upp í sveit. Biggi keyrði bíl hérna í fyrsta sinn, frekar kómískt svona eftir á.
Við vorum rosa stressuð. Ég að ópa: "Biggi - kanturinn, KANTURINN!!!" og hann að kyrja: "Vinstra megin, vinstra megin..."
En þetta hafðist, allir lifðu af og bílnum var skilað í heilu lagi til baka á bílaleiguna.
Sáum ekki skrímslið Nessie, en við fórum að Loch Ness. Svaka flott sko, en þetta er bara vatn...

Svo er aðalmálið núna:
BIGGI SNILLINGUR NÁÐI PRÓFUNUM!!!!!!!
Hjúkkitt!
Við fengum okkur sko freyðivín í gærkvöldi til að fagna.
Já Sigga; hann fær líka frappucino ;-)

Svana og Biggi (hennar) og Emma farin til Íslands til að láta pússa sig formlega saman fyrir guði og mönnum.
Minnir að dagurinn sé 9. júní. Meira um það seinna. Þeirra verður allavega sárt saknað hérna.
Edinborgararnir
5 athugasemdir

Nýjar myndir!

17. maí 2007 klukkan 23:03
Það eru komnar fullt af nýjum myndum inná prinsessusíðuna.
Skrifa seinna, svíður í augun, ætla taka úr mér linsurna og fara sofa.
Later.
Edinborgararnir
5 athugasemdir

Hrylli-tćki og enn meira Eurovision

12. maí 2007 klukkan 12:35
Fréttirnar hérna í Bretlandinu eru stundum alveg að gera út af við mig!
Nú er búið að ræna lítilli, breskri stelpu frá Portúgal, 16 strákur var skotinn til bana í einum af görðunum hérna í Edinborg í nótt, maður var skotinn í Glasgow í fyrradag... Ég gæti haldið áfram og er í raun ekki að segja frá næstum því öllu, þetta er bara alveg nóg.
Fyrst þegar við komum hingað út fékk ég hálfgert sjokk yfir öllum glæpunum og öllu þessu ömurlega sem gerist hérna sem við fréttum aldrei af heima á Frónni. Ég vissi bara ekki hvar ég var lent. Maður hefði haldið að ég væri farin að herðast og brynjan að verða þykkari en nei! Næstum því á hverjum degi heyri/sé ég einhverjar fréttir í útvarpinu eða í sjónvarpinu sem mér bregður bókstaflega við að heyra/sjá.
Brrrr.....

EN! Núna að stóra málinu - mála málanna í kvöld: Evróvision beybí!
Núna er ég að vinna í því að gera íbúðina hæfa gestum því Svana og co. ætla að kíkja í kvöld. Síðan Biggi (minn) byrjaði í þessari próftörn hefur ekki verið gert mikið í húsverkadeildinni hérna í Polwarth-kastala. Það er ekki séns að ég geti ryksugað ef ég er ein með Bjarnheiði. Hún er óstjórnlega hrædd við ryksuguna. Það er alveg ótrúlega skrítið, örugglega eitthvað hátíðnihljóð í tækinu sem fer svona í hana. Ég var víst ekki ósvipuð þegar ég var krakki, gat með engu móti þolað ryksugur. Þoli þær sossum ekkert frekar í dag en ég held nú að það sé af öðrum ástæðum... hundleiðinlegt að ryksuga bara...
En þetta er allt að koma núna, kastalinn er að verða boðlegur svona smátt og smátt. Bjarnheiður er voða dugleg að hjálpa. Ég þurfti að grípa Bigga heima í morgun og halda honum innan dyra svona rétt á meðan ég náði að renna yfir gólfin með hrylli-tækinu (aka. ryksugunni), svo fengum við mæðgur okkur morgunmatinn okkar í rólegheitunum eins og við erum vanar. Svo fór ég inn á baðherbergi að þrífa þar og fer aðeins fram að athuga með afkvæmið... Haldiði að litla dýrið hafi ekki komist í hrökkbrauðspakka og var búin að hjálpa sér með tvö stykki að hrökkbrauði. Hún sat í makindum á mottunni sinni, skoðaði í bók og muldi mylsnum í gríð og erg. Voða ánægð. Ekki ég. Núna þarf ég að safna kjarki í það reyna ná þessu upp með hrylli-tækinu ein með stelpuna... Mín bíður skemmtileg verkefni eða hittó.
Wish me luck!
Við höldum ekki Scooch - breska atriðinu í Euro. Það er bara allt of leim. Ég eiginlega held ekki með neinum þannig séð, nema bara því sem ungfrú Bjarnheiður var búin að "spá" sigri. Og af Búlgaríu og Þýskalandi held með þeim síðar nefndu. Af augljósum ástæðum. Er samt ekki að taka þátt í neinu stríði milli austurs og vesturs... Þýska lagið er bara muuun betra.
Hver kann þýsku?
Hvernig segir maður áfram Þýskaland?
Edinborgararnir
6 athugasemdir

Spákonan reyndist sannspá

11. maí 2007 klukkan 17:54
Tókuði eftir því að búlgarska lagið fór áfram?
Ég verð að segja að mér persónulega finnst það lag ekkert æðislegt en hún Bjarnheiður virðist hafa hitt naglann á höfuðið. Þannig bæði lögin sem henni fundust best eru inni.
Ég ætla ekki að taka þátt í A-Evrópu umræðunni...
Edinborgararnir
Engin athugasemd