Melónur og tissjú
30. apríl 2007 klukkan 10:49
Ég er búin að gefast upp á að bíða eftir fleiri niðurstöðum frá ykkur.
Meira að segja Biggi, sem á nú að heita meðeigandi þessarar síðu, lét ekki svo mikið sem eitt orð eftir sig liggja í kommenti.
Það er nú ekki mikið að frétta héðan. Biggi er á kafi í próflestri og prófum (jájá, það er engin afsökun fyrir að kommenta ekki...), hann tekur átta próf og verður ekki búinn að þessu fyrr en 18. maí. Akkúrat núna situr hann á móti mér við borðstofuborðið og er að fara yfir glærur. Ég held að hann ætli að láta mig hlýða sér yfir... ekki veit hvar ég að byrja, sé örugglega ekki muninn á blaðsíðutalinu og dæmunum. Bjarnheiður situr á milli okkar og er búin að rífa tissjú niður í frumeindir sem hún dífir svo ofan í melónu og borðar af bestu lyst. Ætli að þurfi þá að skeina henni næst...?
12. maí (daginn áður en undirrituð á afmæli ;-)) verður Eurovision. Við Svana og Biggarnir og Emma og Bjarnheiður ætlum að horfa á það saman hérna í Polwarth-kastala. Eins og ég hef verið mikil Eurovision manneskja undanfarin ár þá hef ég ekki mikið fylgst með því núna í ár. Það er nottla ekki næstum því eins mikið talað um það hérna, örugglega ekki eins mikil spenna að vita að þú eigir öruggt sæti no matter what. En ég sá atriðið sem á að fara héðan - já, atriðið, það er eiginlega ekki hægt að kalla þetta lag - og það er hræðilegt, vægast sagt.
En svo hef ég passað mig á því að láta ekki freistast til að kíkja á hann Eika Hawk, hef alltaf að langað til að vita hvernig það væri að sjá ekki framlag Íslendinga fyrr en í keppninni sjálfri. Svona ekki búin að venjast laginu og telja sjálfri mér í trú um að það sé langflottasta lagið by far. Nota að sjálfsögðu tækifærið núna.
Ég hlakka alveg til bara!
Jæja, ætli það sé ekki best að fara koma sér af stað, við Bjarnheiður höfum staði til að sjá og fólk til að hitta, brjálað að gera hjá okkur. Í góða veðrinu.
Já, og svo getur verið að við ætlum okkur ekkert að koma heim í bráð, kannski ekki fyrr en árið 2010...

Edinborgararnir
Engin athugasemd
Engin athugasemd