18. ágúst 2007 klukkan 23:41
Tók mig til í dag og bakaði þessa líka
snilld - að sjálfsögðu sykur- og hveitilaus... Næstum því en ég breytti henni aðeins; notaði spelt í staðinn fyrir hveiti og agave-sætu í staðinn fyrir sykur og ég held að það breyti bragðinu ekki neitt.
Heitið á henni hljómar mjög einkennilega ég veit, en hún er rosalega góð. Það tekur smá tíma að gera hana en hey! ég hef nóg af honum þessa dagana.
Sko, í staðinn fyrir að pakka búslóðinni okkar niður í kassa og allt það þá er ég bara að dóla mér. Okkur var farið að kvíða svo rosalega fyrir því að fara héðan að við ákváðum að fara barasta ekkert!
Reyndar ætlum við að sækja Ísland heim í nokkra daga í sept. en svo komum við bara aftur hingað og höfum ekki hugmynd um hvað við erum að fara gera. Það kemur bara í ljós. Við erum allavega búin að redda húsnæðismálum bæði hérna úti og líka heima í Eskihlíðinni. Það eru s.s. einhverjir Pólverjar búnir að vera í íbúðinni okkar undafarna mánuði, mind you ekki sama fólkið og leigði hana upphaflega...
Við höfum ekki hugmynd um hver er þarna núna en leigan er alltaf greidd og í gegn um krókaleiðir gat ég komist í samband við fyrrverandi vinnuveitanda vinar sons hjóna sem búa (kannski) þarna núna. Eða allavega eru þessi hjón partur af íbúunum, það eru víst einhverjir fleiri þarna. En þessi vinur sonar(...) er búinn að segja okkur að það sé ekki heill hópur af fólki þarna og hefur aldrei verið. Nágranninn okkar segir að það heyrist aldrei neitt frá íbúðinni þannig við erum bara sátt. Á meðan þau borga og eru ekki að valda nágrönnum okkar ónæði þá er okkur sama.
Allir sáttir.
Við verðum allavega eitthvað áfram hérna, engan veginn tilbúin að fara aftur til Íslands til að búa þar strax. Okkur langar bara til að vera lengur og gerum það þá bara. Hey! Hvað er það versta sem getur gerst? Getum haft þessa íbúð lengur og svo gætum leigt aðra íbúð líka ef við lendum í húsnæðisveseni. Þá er bara að finna leið til að afla peninga. Kwa! Ætti ekki að vera vandamál.
Annars er bara allt rosa gott að frétta.
Biggi er á lokasprettinum með lokaritgerðina, á að skila 24.ágúst. Við getum ekki beðið. Samskipti okkar hjónaleysana á sér stað símleiðis þessa dagana. Hann er bókstaflega fram á nætur upp í skóla að skrifa (eða svo segir hann allavega ;-))
Festivalið er á fullu hér í borg núna. Ég hef ekki farið á neitt sem er í boði en það er alveg fullt sem mig langar á. Við ætlum að reyna kíkja á eitthvað þegar Biggi er búinn en það er auðvitað ekki margt sem maður getur farið á með eins og hálfs árs barn. Það er ekki hægt að bjóða henni upp á hvað sem er sko. Hún hefur mjög sterkar skoðanir á því hvað hlutirnir megi taka langan tíma og það tekur víst allt of langan tíma sem er í boði á festivalinu. En bara það að fara niðrí bæ þessa dagana er alveg nóg skemmtun í sjálfu sér. Þvílík mannmergð og fjör! Hugsið ykkur menningarnótt og margfaldið með tíu, og svoleiðis er þetta hvern einasta dag! Að labba niður Royal Mile er upplifun í sjálfu sér. Endalaust af fólki, endalaust. Að bjóða upp á atriði, að sýna brot úr atriðum til að auglýsa sýningar og svo er fólk að dreifa auglýsingamiðum á hverju skrefi sem maður tekur. Það er hægt að labba 5 metra og fá upp í hendurnar 20 auglýsingamiða. Bjarnheiður kæmist ekki fyrir í vagninum ef ég tæki við öllum miðunum sem okkur væri boðið og ég myndi setja þá í vagninn hennar. Það er ekki skrítið að regnskógarnir séu að hverfa...
Talandi um regn...
Veðurmælingar hófust í Bretlandi kringum 1750.
Árið 1786 var metár í regni. Þá rigndi meira en elstu menn mundu og síðan mælingar hófust.
Núna í sumar ha, árið 2007 ha, 321 ári eftir að metárið í regni kom og 357 árum eftir að mæilngar hófust ha, var þetta met slegið HA!!! Hverjar eru líkurnar? Akkúrat þegar við Íslendingarnir ætluðum svo aldeilis að njóta þess að fá gott, heilt rigningarlaust SUMAR, þá er þetta blessaða met slegið!
Get svo svarið það. Og á móti hefur þá veðrið upp á Frónni verið svo gott að elstu menn muna ekki annað eins.
Eða, eins og pabbi sagði; næst-elstu menn, þeir elstu eru farnir að kalka svo mikið að þeir muna ekki lengur hvað mömmur þeirra hétu, hvað þá hvernig veðrið var í gamla daga ;-)
(þetta með myndirnar, þær koma bráðum...)